Stimplaðu þig inn með einni snertingu
Þú getur líka látið símann stimpla þig inn þegar þú mætir í vinnuna. Appið vistar aðeins staðsetningu vinnustaðarins. Þín staðsetning er aldrei vistuð.
Tímaskráning · vaktir · yfirvinna
Stimplaðu þig inn og út í símanum. Þar geturðu skipulagt vaktirnar þínar og fylgst með unnum stundum, flextíma og yfirvinnu.
Verið er að prófa appið. Þegar það kemur út finnurðu hér tengla á App Store og Google Play.
Þú getur líka látið símann stimpla þig inn þegar þú mætir í vinnuna. Appið vistar aðeins staðsetningu vinnustaðarins. Þín staðsetning er aldrei vistuð.
Skráðu vaktir og frí og fáðu áminningu áður en vaktin hefst. Á vaktaplaninu sérðu líka almenna frídaga og stórhátíðardaga.
Þú sérð unnar stundir, flextíma og yfirvinnu miðað við stillingarnar þínar. Appið heldur utan um vinnustundir og reiknar engin laun.
Þú getur notað appið án aðgangs, líka þegar þú ert án nets. Þá geymast skráningarnar þínar í símanum.
Ef þú skráir þig inn vistar appið afrit af gögnunum þínum á netþjóninum og samstillir breytingar. Þegar vefgáttin opnar sérðu þar skráningarnar sem síminn hefur sent.
Fyrir þig sem vilt halda utan um þinn eigin vinnutíma. Það er alltaf ókeypis fyrir einstaklinga.
Starfsfólk notar vinnuaðgang í appinu. Á vefnum mun það geta gert allt sem hægt er í appinu og fleira. Vefgáttin er í undirbúningi. Vinnuaðgangur og persónulegur aðgangur eru alltaf aðskildir.